Archive for febrúar 2012
Nokkuð snarpir skjálftar á Reykjaneshrygg
Jarðskjálftahrina hófst í nótt á Reykjaneshrygg um 60–70 km. sv. af Reykjanestá. Hrinan stendur enn og eru stærstu skjálftarnir hingað til um og yfir 3 á Richter samkvæmt sjálfvirkum mælum Veðurstofunnar. Jarðskjálftahrinur á þessum slóðum eru algengar og oft mun öflugri en þessi. Ein slík hrina varð í ágúst 2011 en þá mun nær landi og með skjálftum upp á 4 á Richter.
Meðfylgjandi mynd sem fengin er af vef Veðurstofu Íslands (http://www NULL.vedur NULL.is/) sýnir upptök skjálftanna. Grænar stjörnur eru skjálftar yfir 3 á Richter.
Uppfært kl. 13:36 Hrinan færðist nokkuð í aukana uppúr kl. 10 í morgun og allmargir skjálftar um 2,5–3 hafa orðið síðan þá. Ekkert bendir þó til annars en að þetta sé hefðbundin jarðskjálftahrina á Reykjaneshryggnum.
Nokkur skjálftavirkni við Mýrdalsjökul og á Hengilssvæðinu
Siðastliðinn sólarhring hafa orðið allmargir smáskjálftar á víð og dreif við Mýrdalsjökul en þó flestir í Kötluöskjunni og svo vestan við hana, á Goðabungusvæðinu. Þá hófst hrina smáskjálfta á Hengilssvæðinu sem tengist væntanlega niðurdælinu vatns á svæðinu á vegum Orkuveitunnar.
Samkvæmt óyfirförnum mælingum á vef Veðurstofunnar (http://www NULL.vedur NULL.is/skjalftar-og-eldgos/jardskjalftar/) varð skjálfti upp á 5,0 um 196 km SSV af Eldeyjarboða á Reykjaneshrygg um kl. 19:24. Telja verður líklegt að sjá skjálfti hafi ekki orðið eða sé mun minni en þessar mælingar sýna.
(http://www