Fylgstu með!
Eldgos.is er upplýsinga- og fréttasíða um eldgos og jarðskjálfta á Íslandi. Ef þú skráir nafn og netfang þitt í gluggana hér að neðan þá færð þú sendan póst þegar við setjum inn nýtt efni eða breytum eldgos.is verulega. ATH að við afhendum EKKI netfang þitt til þriðja aðiila.

(http://www NULL.chess NULL.com?ref_id=4222785)
Free online chess games! (http://www NULL.chess NULL.com/)

Við áramót

Nú er árið 2012 gengið í garð og rétt að fara yfir það mark­verð­asta sem gerð­ist árið 2011.  Þar er að sjálf­sögðu efst á lista stór­gosið í Grím­svötnum í maí.  Það kom engum á óvart að þar yrði gos en kraft­ur­inn í því var miklu meiri en menn eiga að venj­ast í Grím­s­vatnagosum.  Gosið stóð hins­vegar stutt, kanski til allrar ham­ingju því nóg voru lætin meðan það stóð.  Mikið ösku­fall varð á suð­aust­ur­landi, að hluta til á sömu svæðum og höfðu orðið fyrir barð­inu á Eyja­fjalla­jökli árið áður.  Þetta 5 sól­ar­hringa gos fram­leiddi jafn­mikið af gos­efnum og gosið í Eyja­fjalla­jökli sem stóð i 40 daga!

Katla var með derr­ing allt árið, sér­stak­lega þó um sumarið þegar talið er að smágos hafi orsakað hlaup í Múla­kvísl.  Gosið, ef eitt­hvað var, náði ekki uppúr jökl­inum.  Á haust­mán­uðum urðu öflugar jarð­skjálfta­hrinur í Kötlu en sú gamla lét það duga að sinni.  Heldur hægð­ist um undir lok ársins enda á Katla það helst til að gjósa á tíma­bil­inu sept­em­ber til nóv­em­ber miðað við sög­una.  Teng­ist það vænnt­an­lega þrýst­ings­breyt­ingum vegna snjó­bráðn­unar á jökl­inum seinni part sumars.

Krísu­vík­ur­svæðið var á tals­verðri hreyf­ingu af og til á árinu.  þar gengu yfir skjálfta­hrinur og nokkuð landris hefur einnig mælst á svæð­inu.   Ekki er enn ljóst hvað veldur því, vænt­an­lega þó ann­að­hvort kviku­söfnun undir svæð­inu eða breyt­ingar á háhitasvæðinu.

Bárð­ar­bunga hrist­ist stundum hressi­lega á árinu og virt­ist hreyf­ingin ná yfir stórt svæði, frá Hamr­inum í suðri að Kistu­felli norðan við Bárð­ar­bungu.  Þetta kerfi hefur verið órólegt lengi, reyndar síð­ustu áratugi en ekki enn gosið.  Gjálp­argosið 1996 til­heyrði Grím­s­vatna­eld­stöð­inni þó stór skjálfti í Bárð­ar­bungu hafi komið gos­inu af stað.

Þá urðu einnig hrinur í Suð­vest­ur­horni Lang­jök­uls eins og reyndar stundum vill verða.  Mikla athygli vöktu svo mann­gerðir jarð­skjálftar á Hell­is­heiði í tengslum við dæl­ingu vatns í bor­holur á svæðinu.

HVAÐ SEGJA VÖLVURNAR UM 2012 ?

Það er sér­ís­lenskur siður að ákveðnir fjöl­miðlar fá völvur til liðs við sig um áramót og svona til gam­ans kíkjum við á hvað völvur Vik­urnnar og DV hafa um næsta ár að segja hvað ham­farir varðar.  Er fyrst til að nefna að þær eru algjör­lega á öndverðum meiði og virð­ast hafa mjög ólík tengsl í anda­heimum.  Viku­völvan spáir miklum ham­förum í Kötlu á árinu  og reyndar miklum umbrotum víða á land­inu.  Katla á að hreyfa bæði við Heklu og Vatna­jökli.  Nefnir hún einnig Grímsey og Kol­beinsey til sög­unnar en þó lík­lega frekar fyrir jarð­sjálfta á því svæði en eld­gos.  Þá nefnir hún Bláfjalla­svæðið og Reykja­nes­hrygg­inn, hann fer að gera “ein­hverja vit­leysu” á næst­unni. Þá sér hún byggð fara undir hraun.  Hvað Kötlu varðar sér hún mikla gjósku og einnig hraun.  Okkar mat: Að allt þetta ger­ist á einu ári er nú frekar hæpið, jafn­vel þó um 2012 sé að ræða!  Einnig er mjög ólík­legt að hraun renni frá Kötlu, slíkt ger­ist ekki í gosi sem er í öskjunni undir 700 metra þykkum ís en þar eru lang­flest Kötlugosin.  Hins­vegar getur gosið í hlíðum fjalls­ins eða eins og gerð­ist árið 934 að sprungan nái úr öskjunni og norður fyrir jök­ul­inn en hvort til­fellið sem er verður að telja mjög ólík­legt enda virknin síð­ustu ár bundin við öskjuna fyrst og fremst en einnig Goða­bungu.  Hún er reyndar nær íslausu svæði á Fimm­vörðu­hálsi og A-V sprunga gæti tækni­lega séð náð inn á íslaust svæði þar.

DV völvan tekur svo allt annan pól í hæð­ina og segir Kötlu sofa áfram!  — Hún spáir hins­vegar gosi í sjó á milli lands og Vest­manna­eyja. Það væri reyndar grafal­var­legur atburður að fá gos á þeim slóðum enda ekki nema tæpir 10 km. á milli Heima­eyjar og fasta­lands­ins — Gosið gæti allt eins teygt sig inn á Heimaey.  Ell­iðaey er norð­austan við Heimaey, mynduð í stóru gosi fyrir um 5–6000 árum.  Það er reyndar ekk­ert útil­okað að hrinan sem hófst við Vest­manna­eyjar 1963 með Surts­eyj­argos­inu (?) sé ekki liðin hjá.  En í þessu sam­bandi er vert að geta þess að það er ekki alveg á hreinu að gos­hrinan í Vest­manna­eyja­kerf­inu hafi haf­ist með Surtsey.  nokkuð áreið­an­legir ann­álar benda til þess að gos hafi orðið í sjó við Vest­manna­eyjar árið 1896 og hér má svo sjá frá­sögn (http://nafar NULL.blog NULL.is/blog/nafar/entry/1209455/) af hugs­an­legu gosi árið 1941 en af því fer þó fáum sögum.  Vest­manna­eyja­kerfið er svo­lítið líkt Heklu að því leiti að nán­ast eng­inn fyr­ir­vari er á gosum þar, ein­hverjir skjálftar fáum klukku­stundum fyrir gos virð­ist vera allt og sumt.  En vonum bara að DV völvan hafi rangt fyrir sér.

Talandi um Heklu þá telur sá er þetta ritar langlík­leg­ast að hún láti á sér kræla á árinu — reyndar miklu lík­legri en aðrar eld­stöðvar.  Vitað er að kvika hefur safn­ast í kviku­hólfið frá síð­asta gosi og þrýst­ingur orð­inn nokkuð mikill.

Eldgos.is óskar les­endum gleði­legs árs og friðar.

One Response to “Við áramót”

  • Björgvin:

    Sam­mála þessu með Heklu. Hugsa að hún fái hríðir í apríl næst­kom­andi og gjósi tign­ar­lega, held að Katla safni í sarp­inn fyrir októ­ber sama ár og að Land­vættir Rík­is­ins sýni mátt sinn í verki og kom­ist í heim­spress­una með eft­ir­minni­legum hætti enn einu sinni. Kæmi mér ekk­ert á óvart þó flóð­bylgja eða ein­hver ósköp ættuð frá Kötlu grandi helstu for­kálfum vog­un­ar­sjóð­anna eða eitt­hvað álíka. Einnig væri týpískt að gosið milli lands og eyja sem DV völvan nefnir yrði að veru­leika. Það er líka mögu­leiki að það séu til­von­andi gríð­ar­leg gos­efnin frá Kötlu sem villi um fyrir DV völv­unni og það sé það sem hún sér. Reikna bara hálfpart­inn með að geta keyrt þurrum fótum alla leið í febrúar– mars 2013 eftir að atvinnu­lausir fv. þing­menn suð­ur­kjör­dæmis hafa glað­hlakka­legir mal­bikað leið­ina með berum höndum, það er að segja ef Ink­arnir hafi rangt fyrir sér og það komi 2013, þrátt fyrir að tíma­tal þeirra hafi endað í des 2012. Spái spenn­andi ári á öllum víg­stöðvum… hehehehehe… Gleði­legt ár ;-)

Leave a Reply